When you know the WHAT you will know the HOW

Gyðublogg

05.03.2008 14:19:24 / gyda

Og ég held áfram... :)

Já alveg hreint ótrúlegt. En er hvort eð er alltaf að þvælast eitthvað á netinu þannig að get svo sem vel skellt inn nokkrum línum hér öðru hverju til að leyfa ykkur að fylgjast aðeins með:)

Um helgina hélt ég loksins innflutningspartý þó ég hafi flutt inn fyrir 10 mánuðum! Vinkona mín átti afmæli og við borðuðum 8 saman hér fyrst og ég bakaði hrikalega góða gulrótarköku og svo bættist fleira fólk í hópinn seinna um kvöldið. Fékk nokkrar gjafir sem ég bjóst nú alls ekki við! Eyrnalokka, leggings, kerti, blóm og blómavasa! Alveg æðislegt og takk kærlega fyrir mig allir. Svo fórum við í bæinn og ég kom heim kl. 5, snilldarkvöld:)

Erum 6 íslenskar vinkonur búnar að stofna matarklúbb og borðum alltaf saman á sunnud.kvöldum og fékk dýrindis grænmetislasagne hjá Guðnýju sl. sunnudag og ís og kókosbollur í eftirmat. Já þetta var svo sannarlega áthelgi enda er ég búin að fara í ræktina bæði í gær og hinn til að reyna að ná þessu af mér!

Núna á ég að vera að skrifa skýrslu og er að reyna að fá mig í það..... vorum í nýrnaæfingu á mánudaginn þar sem ég þurfti að pissa 4x í glas og svo mæla alls konar dót í þvaginu. Fékk að blanda því með vatni og svo einhverjum vökva og hrista það saman og nota alls konar pípettur og dót og flottar vélar til að lesa úr þessu öllu. Og svo fékk ég að taka blóðprufu, þannig að mér leið eins og alvöru "laborant" :) Skemmtileg æfing sem sagt en svo þarf víst að skrifa skýrslu úr þessum herlegheitum og reyna að fá einhverja niðurstöðu...... jájá, þarf bara að sparka aðeins í rassinn á mér, en ætti alveg að ganga.

Það snjóaði hér í gær en eins og oft vill vera hér þá varði það bara í 5 mínútur max og var farið um leið. En gaman samt :) Í dag er svo bara mjög stillt veður og sól og alveg við frostmark. Jæja krúsídúllurnar mínar er farin að reyna að vera dugleg þó ég nenni því bara alls ekki. Það er þetta að við að vera í skóla að maður ber sjálfur ábyrgð á sínu eigin námi... það er enginn yfirmaður sem fylgist með að maður geri örugglega það sem þarf! Oft vont en stundum gott, en núna þyrfti ég samt alveg á einum slíkum að halda;) En geri mitt besta!
Er farin, hej hej.
kv. frá Odense
Haukur skrifaði
Ok ég er alveg tilbúinn að standa undir því að halda áfram að bogga líka en ef þú ætlar að vera blogga á hverjum degi þá er ég í vondum málum hahahaha ég nenni því ekkert hahahaha en ef þig vantar yfirmann þá hef ég reynslu, get rekið þig áfram með harðei hendi hahaha gamana f þessu er það ekki múhahahaha

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.