When you know the WHAT you will know the HOW

Gyðublogg

07.06.2008 09:05:40 / gyda

Brúðkaupsmyndir

Jæja þá er ég komin frá USA fyrir um viku síðan og búin með fyrsta prófið mitt (sem gekk vel) og á kafi upp fyrir haus í lestri fyrir næsta próf sem er á fimmtudaginn. Það hefur gengið hálfilla að losna við "jetlagið" eftir 9 tíma tímamun og það er ekki alveg að hjálpa mér andlega og tímanlega séð.... og það í bland við allt stressið sem fylgir prófalestri er bara engan veginn að gera sig :( En náði að sofa býsna vel í nótt og gat sofnað kl.2 í staðinn fyrir kl. 5 og 6 sl. nætur, þannig að vona að þetta sé allt að komast í rétt horf. Sé svo  fimmtudaginn í næstu viku eftir kl. 2 fyrir mér í hyllingum því þá er ég komin í sumarfrí! 


Er búin að setja fullt af USA myndum á facebook og hér er flott myndasería líka sem atvinnuljósmyndari í brúðkaupinu tók:  


http://www.indphotography.com/ss/480272/index.html


kv. úr sól og sumaryl hér í Odense


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 14:16:05 / gyda

OF mikið að gerast!

Jæja þá er ég komin aftur til DK eftir langa helgi á Íslandi sem var alveg ÆÐISLEG! Theodóra systir mín var að útskrifast úr hárgreiðslu og ég var mest með fjölskyldunni minni í öllu útskriftarstússinu (útskrift og veisla á föstudeginum) já og svo átti pabbi og Róbert afmæli á laugard. og sunnud, þannig að það var mikið um að vera. Náði rétt að hitta Sunnu, Önnu og Sif á laugard.kvöldinu og rosalega gaman að sjá þær! :) Annars gerði ég ekki annað en að borða og er örugglega búin að bæta á mig þessu 1,5 kg sem ég missti í vikunni á undan á súpukúrnum mínum! Meira um hann síðar, en hann virkar allavega! 

Var að klára einn áfanga í dag sem heitir mól D og snýst um verkefni sem við skrifðum og vorum að kynna í dag og fengum "bestået"! jeiiiiiiiii :) Svo er siðfræðikúrs allan morgundaginn og fimmutaginn og svo er ég farin aftur upp í flugvél á föstudaginn og að þessu sinni til London og þaðan til Los Angeles! Já er ekki mikið heima hjá mér þessa dagana og þarf af leiðandi læri ég ekki eins mikið og æskilegt væri svona 2 vikum fyrir próf en þetta reeeeedast allt. Eins og vinur minn sagði þá giftir fólk sig vonandi bara einu sinni á ævinni en maður getur alltaf tekið prófin 3 sinnum ;) Annars vantar mig bara sumarföt fyrir 30 stiga hitann sem ég er að fara þarna í USA. Næ kannski að versla eitthvað næstu daga á milli þess sem ég mæti í skólann, þvæ þvott, læri og pakka! Já mitt slagorð er svo sannarlega "þetta reddast"!!! Það á alls staðar við!  ;)

Jæjasmæja, þá er að halda áfram að lesa um histamin og nýrun og eitthvað því um líkt. Hafiði það gott öll sömul,
kv. frá Odense G 

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 21:08:24 / gyda

Hitt og þetta

Þá er ég búin að skila mól D verkefninu og búin að fá báðar skýrslurnar á þessari önn "góðkenndar" :) Jeiiiii gott að vera búin með það. Núna er því bara framundan að fara að lesa fyrir próf, þarf að vera tilbúin fyrir fyrsta prófið mitt eftir 5 vikur og það er margt sem ég þarf að ná á þessum tíma!!! jæts ! 

Annars fór ég í fyrsta fiðlutímann minn áðan í ja... jú 3 ár!! Það var mjög gaman og vakti góðar tilfinningar sem voru orðnar vel niðurgrafnar í sálinni :) Fiðlukennarinn minn býr í Póllandi en spilar með sinfoníuhljómsveitinni hér ca. 1x í mánuði þannig að ég fer til hans þegar hann er hér. Líst mjög vel á hann, skemmtilegur kall og flottur fiðluleikari. Verður rosalega gott að hafa eitthvað annað að gera en bara að læra þó ég lofi nú ekki að ég verði alveg úberdugleg að æfa mig. 

Í fyrramálið kl. 8 er ég á leiðinni í afmælismorgunkaffi á hæðinni hér fyrir ofan mig til stráks sem er með mér á önn. Ohh yndislegt :) Og svo ætla ég á sinfoníutónleika annað kvöld og spilakvöld hjá Halldísi eftir það. Var að kaupa cluedo og jungle speed eftir að hafa gjörsamlega fallið fyrir þeim spilum hjá henni Mæsu í páskafríinu! Svo er "den store bededag" á föstudaginn sem er frídagur þannig að hver veit hvernig fimmtud.kvöldið endar ;) 

En jæja rúmið kallar zzzzzzzzzzzzz. 
Góða nótt
kv. G

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 11:50:27 / gyda

Bandaríkjamenn kaupa Grænland

Þessi frétt birtist í einu af fríblöðum Danmerkur í gær (metroexpress) 1. apríl og við lestur hennar rak ég upp stór augu. Hér kemur fréttin:
 

Grønland solgt til USA

USA har købt Grønland for 1200 milliarder kroner. Jubel på Christiansborg

USA og Grønland

• Grønland har geografisk altid hørt til det nordamerikanske kontinent.
• Under Anden Verdenskrig var Grønland mellemstation for de allieredes flytransporter fra USA til England.
• Thule Air Base, den amerikanske militærbase i det nordvestlige Grønland, blev oprettet i 1950’erne under Den Kolde Krig. 

 

Efter tophemmelige forhandlinger mellem repræsentanter for USA og danske folketingspolitikere står det nu klart, at Danmark sælger Grønland til USA.

Amerikanerne har længe haft kig på den kolde ø i Nord­atlanten, der spiller en afgørende rolle i opbygningen af USA’s missilskjold. Samtidig har amerikanerne store forhåbninger om, at Grønlands undergrund kan sikre olieforsyningen i mange år fremover. Det fik USA til at byde svimlende 1,2 milliarder kroner for Grønland.

Et tilbud, som det var umuligt at sige nej til, jubler Peter Skaarup fra Dansk Folkeparti.

»Vi har ikke haft andet end problemer med Grønland de sidste mange år. Derfor kommer købstilbuddet fra amerikanerne på det bedst tænkelige tidspunkt. Ud over at vi får en net engangssum, slipper vi nu også for det årlige bloktilskud til Grønland,« siger han.

Også de grønlandske folketingspolitikere glæder sig over købet.

»Amerikanerne vil investere store summer i udviklingen af det grønlandske samfund. Vi går en ny og lys fremtid i møde,« siger Lars Emil Johansen (Siumut).

Det historiske salg sker knap 100 år efter, at Danmark i 1917 solgte de dansk-vestindiske øer til USA for 25 millioner dollar. Det blev en guldrandet forretning for amerikanerne, som har tjent fedt på turisme til tropeøerne. Nu håber amerikanerne på et nyt erhvervseventyr.
Blandt andre den nord­amerikanske whisky-producent Johnnie Walker ser store muligheder i broen.

»Med broen får vi nem adgang til den grønlandske indlandsis, som giver verdens flotteste isterninger. Vi vil også producere en ny whisky på smeltet indlandsis – ‘Greenland on the rocks’,« lyder det i en pressemeddelse fra Johnnie Walker.

Det er endnu uklart, hvad Danmark skal bruge de mange milliarder til, men Peter Skaarup mener, at alle danskere som minimum skal have et forsinket påskeæg med posten.   


Ja hérna hér!! Stórmerkileg frétt og ég trúði hverju orði! Ætli fréttin gæti tengst því eitthvað á hvaða degi hún var skrifuð... hmmmm möguleg,en ég komst fyrst að því löngu síðar! Já gaman að vera svona auðtrúa hahaha :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 22:29:36 / gyda

Smá fréttir

Er komin aftur til DK eftir alveg frábært páskafrí heima á Íslandi. Er endurnærð alveg og lærði svo mikið sem 2 klst á þessum tíma þannig að má segja að ég hefi tekið mér gott frí frá lærdómnum. Soldið erfitt að komast aftur í gang en VERÐ bara því að ég er víst á leiðinni til útlanda rétt fyrir próf........ já þetta kom allt soldið óvænt en allavega er sagan sú að mér er boðið í brúðkaup í Los Angeles í USA 26. maí og það er hún Alexandra Fershko, besta vinkona mín frá því ég var í enskuskóla í Englandi 2001 sem er að fara að gifta sig. Allavega þá hef ég ekki efni á ferð alla leið til USA þannig að hún er búin að kaupa eitt stk miða fyrir mig og ég er á leiðnni þangað 23. - 29. maí :) :) Alveg hreint ótrúlegt og ekki nóg með það því hún er líka búin að kaupa á mig kjól því að ég verð ein af þremur brúðarmeyjum í brúðkaupinu! Spennandi eða hvað?!! :) En allavega kem ég heim aftur 4 dögum fyrir fyrsta prófið mitt þannig ég verð að fara að spýta í lófana í lestrinum mjög fljótlega. En svo þið fáið nú með söguna af kjólnum, þá var ég búin að hafa miklar áhyggjur af þessu, þ.e. undirbúa mig fyrir einhvern ægilega ljótan bleikan kjól með púffermum og slaufu á rassinum og ég veit ekki hvað og hvað hehe. EN hann er svartur með blómum og hnésíður með "spaggetti straps" og mjög elegant að hennar sögn. Er ekki búin að sjá mynd af honum ennþá þannig að finnst blómin hljóma soldið riski en vona það besta.... !! Já þetta eru svo sannarlega fréttir mánaðarins og meira en það.

Annars gengur lífið sitt vanagang hér, er að fara til Köben rétt að skreppa til að taka á móti styrk sem ég fékk... fyrsti styrkurinn sem ég hef fengið á ævinni og er mjög ánægð með þetta :) Annars snýst lífið aðallega um skólann og smá stress farið að gera vart við sig og það er einhvern veginn alltof margt framundan, en þetta ætti allt að vera hægt ef viljinn er fyrir hendi. Vona að lífið gangi vel hjá ykkur hvar sem þið eruð í heiminum. Og muniði að lífið er rosalega dýrmætt! Ég er búin að hugsa mikið um það í dag eftir þessar fréttir sem ég fékk í morgun: http://www.fyens.dk/article/965311:Odense--22-aarig-draebt-i-Odense . (Þar sem broskallinn er á að vera ":" og svo "O".... kemur bara broskall í staðinn í þessu forriti, kann ekki að laga það!) Það var sem sagt 22ja ára norskur strákur sem var vinur nokkurra vina minna sem dó í bílslysi aðfaranótt laugardags og strákurinn sem keyrði á hann er 21 árs og er líka vinur nokkurra vina minna og hann hafði verið að lesa fyrir próf til kl. rúmlega 2 um nóttina og svo lendir hann í því að keyra á þennan strák. Hvorugur var undir áhrifum áfengis og þetta var ekki bílstjóranum að kenna þar sem strákurinn hjólaði án ljósa og hjálms og hjólaði yfir á rauðu ljósi.... en ég get ekki ímyndað mér að þurfa að lifa með svona löguðu alla ævi. Það getur verið rosalega stutt á milli lífs og dauða og ég hvet ykkur til að hugsa aðeins um það hvað við höfum það virkilega gott. Vandamálin sem við mörg erum að glíma við á hverjum degi eru ekki neitt í samanburði við þetta og reynum að njóta lífsins meðan við getum :) Þetta er boðskapur dagsins, hafiði það sem best öll. 

kær kveðja, Gyða Hlína fína frá Kína 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 20:14:44 / gyda

Tónleikar

Já hæ! :) 

Er á Íslandi núna í páskafríi og er að fara að spila á tónleikum með Sinfoníuhljómsveit Norðurlands á morgun kl. 16. Endilega komiði ef þið eruð stödd á henni Akureyri. Hérna er prógrammið okkar: www.sinfonianord.com . 

Gleðilega páska allir. 
kv. G

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 14:19:24 / gyda

Og ég held áfram... :)

Já alveg hreint ótrúlegt. En er hvort eð er alltaf að þvælast eitthvað á netinu þannig að get svo sem vel skellt inn nokkrum línum hér öðru hverju til að leyfa ykkur að fylgjast aðeins með:)

Um helgina hélt ég loksins innflutningspartý þó ég hafi flutt inn fyrir 10 mánuðum! Vinkona mín átti afmæli og við borðuðum 8 saman hér fyrst og ég bakaði hrikalega góða gulrótarköku og svo bættist fleira fólk í hópinn seinna um kvöldið. Fékk nokkrar gjafir sem ég bjóst nú alls ekki við! Eyrnalokka, leggings, kerti, blóm og blómavasa! Alveg æðislegt og takk kærlega fyrir mig allir. Svo fórum við í bæinn og ég kom heim kl. 5, snilldarkvöld:)

Erum 6 íslenskar vinkonur búnar að stofna matarklúbb og borðum alltaf saman á sunnud.kvöldum og fékk dýrindis grænmetislasagne hjá Guðnýju sl. sunnudag og ís og kókosbollur í eftirmat. Já þetta var svo sannarlega áthelgi enda er ég búin að fara í ræktina bæði í gær og hinn til að reyna að ná þessu af mér!

Núna á ég að vera að skrifa skýrslu og er að reyna að fá mig í það..... vorum í nýrnaæfingu á mánudaginn þar sem ég þurfti að pissa 4x í glas og svo mæla alls konar dót í þvaginu. Fékk að blanda því með vatni og svo einhverjum vökva og hrista það saman og nota alls konar pípettur og dót og flottar vélar til að lesa úr þessu öllu. Og svo fékk ég að taka blóðprufu, þannig að mér leið eins og alvöru "laborant" :) Skemmtileg æfing sem sagt en svo þarf víst að skrifa skýrslu úr þessum herlegheitum og reyna að fá einhverja niðurstöðu...... jájá, þarf bara að sparka aðeins í rassinn á mér, en ætti alveg að ganga.

Það snjóaði hér í gær en eins og oft vill vera hér þá varði það bara í 5 mínútur max og var farið um leið. En gaman samt :) Í dag er svo bara mjög stillt veður og sól og alveg við frostmark. Jæja krúsídúllurnar mínar er farin að reyna að vera dugleg þó ég nenni því bara alls ekki. Það er þetta að við að vera í skóla að maður ber sjálfur ábyrgð á sínu eigin námi... það er enginn yfirmaður sem fylgist með að maður geri örugglega það sem þarf! Oft vont en stundum gott, en núna þyrfti ég samt alveg á einum slíkum að halda;) En geri mitt besta!
Er farin, hej hej.
kv. frá Odense

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 17:57:16 / gyda

Blogg bare for sjov

hæhæ, 
ákvað að skella inn einu bloggi hér.... held að ég sé orðin smituð af Ester sem er skyndilega búin að taka góða bloggkipp :) 

Allavega þá bý ég ennþá í Óðinsvéum, DK, og er núna loksins búin að koma mér rosalega vel fyrir í litlu íbúðinni minni. Var að kaupa mér sófa sl. mánudag og það var svona punkturinn yfir i-ið þannig að núna er þetta allt eins og ég vil hafa það. Mig vantar bara að fá fólk í heimsókn þannig að þið getið séð litla kotið mitt :) 

Skólinn já, hann er bara eins og hann er, það koma upp og niður dagar en einhvernveginn reddast þetta allt að lokum..... eða hefur gert hingað til allavega, sem betur fer. Í dag var niður dagur þar sem ég var nú samt alveg í skólanum í tímum í 5 klst en er bara ekki búið að takast að gera neitt annað en að vaska upp og ganga frá þvotti frá því ég kom heim. Er komin á 5. önn í náminu og er þar með byrjuð á 3. ári takk fyrir takk. Þetta er alveg hreint ótrúlegt, skil bara ekkert í þessu. Það sem mér finnst mest scary við þetta er hvað ég er búin að læra mikið á þessum 2 árum en man eitthvað minna af því!! En það rifjast vonandi upp þegar ég þarf að nota það seinna meir þegar ég er komin útí praktík.... ætla allavega rétt að vona það. Það er ótrúlegt að hugsa til þess hvað við getum lært endalaust og þetta er allt saman vel geymt þarna einhvrsstaðar ef vel er að gáð. Maður þarf bara að nenna að hafa fyrir því og það er oft hægara sagt en gert. En þessi önn er nú mjög spennandi samt. Erum að læra um hormón, nýrun, kynfærin og einhverja lyfjafræði. Svo förum við í massívt próf sem er efni sl. 3ja anna, þannig að það er eins gott að fara að rifja aðeins upp... úff ég verð bara þreytt við tilhugsunina. 

En mitt í öllu þessu brjálæði sem læknisfræðinámið er oft þá þarf maður að reyna að finna sér eitthvað annað skemmtilegt að gera til að halda geðheilsunni. Ég er farin að spila badminton 1x í viku, er m.a.s. búin að fjárfesta í badmintonspaða :):) Svo er ég eitthvað að reyna að halda fiðluhæfileikum mínum gangandi þó þeir séu nú eitthvað að dala... hehe. Spilaði nú samt í aðventkirkjunni hér í Odense sl. laugardag við mikla hrifningu nokkurra eldri kvenna:) Gott að maður getur glatt einhvern! Og svo er ég búin að taka að mér það verðuga verkefni að spila á tónleikum með sinfoníuhljómsveit Norðurlands þann 20. mars nk. Já stundum ætla ég mér aðeins of mikið (jæts) en jújú ætti nú alveg að ráða við þetta... eða það kemur í ljós þegar ég fæ nóturnar í pósti í vikunni! Allavega þýðir þetta að ég er á leiðinni heim til Íslands um páskana og verð þar í heilar 2 vikur:):) Hef sjaldan eða aldrei vitað betra páskafrí og missi bara einn dag af skólanum. 

Annars það helsta sem á daga mína hefur drifið undanfarið er að hafa náð prófunum mínum á 4. önn, mjög stór áfangi! Fór svo í 8 daga ferðalag í byrjun febrúar þar sem ég heimsótti hana Ester mína Mílanó og svo hana Sif mína í Madrid og hún Anna Kristín mín kom með mér eftir að við höfðum fyrst hist í London og flogið þaðan saman til Milanó. Frábær ferð í alla staði og visa kortið aðeins brunnið yfirum!! Er búin að taka 3 vaktir eftir að ég kom heim og þarf að taka nokkrar í viðbót til að koma fjármálunum í gott lag aftur, en alveg þess virði skal ég segja ykkur! :)

En jæja já, þetta er aldeilis orðið veglegt blogg hjá mér. Vona að þið hafið komist í gegnum það ;) Ég segi ekki að ég sé formlega byrjuð að blogga aftur þrátt fyrir þessa einu færslu... en hver veit ?! Ég hef hvort eð er ekki neitt mikið betra að gera þar sem ég nenni "i hvert fald" ekki að læra! ;) 

En jæja elskurnar, hafiði það sem best og vonandi eruð þið aðeins duglegri en ég var í dag.... nei bíddubíddu ég var jú að enda við að blogga, ég er VÍST dugleg ;) hehe. 
Bæjó 
kv. frá Odense 

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 14:24:07 / gyda

'Eg er ...............

HÆTT !

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 23:09:08 / gyda

Er á lífi:)

Það er helst af mér að frétta að ég fór á árshátíð íslenskra læknanemi í Árósum um helgina. Var ekki eins frábært og ég bjóst við, en samt gaman að hitta Íslendinga og kynnast upprennandi íslenskum læknum á danskri grund. Hitti líka Báru einkaþjálfara úr Laugum sem er í skiptinámi þar og það var alveg frábært! Kom heim kl. 9 á sunnudagsmorguninn NB, þannig að það var ekki mikið sofið þá nótt;)

Svo á föstudaginn sl. eignaðist ég splunkunýjan vin sem ég hef ákveðið að skíra Kasper. (Hélt m.a.s. formlega skírn hér í eldhúsinu að viðstöddum 2 vottum!). Hann er þeim eiginleikum búinn að hann kvartar aldrei, sefur aldrei og er þess vegna alltaf tilbúinn að hlusta og er hjá mér öllum stundum. En það vantar hins vegar á hann, tja flest annað en beinin.....! (þið eruð vonandi búin að fatta núna "hvað" hann Kasper félagi minn er!!) Já það er gaman að þessu. Er orðin alvöru læknanemi, með beinagrind inni hjá mér. Lífið gerist ekki mikið betra;) Ses


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 21:54:07 / gyda

Frábær Íslendingahelgi að baki

Já ég ákvað að skella mér til Köben á laugardaginn og kom bara aftur í morgun og það var alveg yndislegt. Gisti hjá Sunnu og Sigurgeiri laugard.nóttina og á laugard.kvöldinu vorum við Sunna, Sigurgeir og hún Borgný með íslenskt júróvisionpartý með lasagne, hvítlauksbrauði, kökum, snakki, nammi og ég veit ekki hvað og hvað. Og Silvía Nótt gjörsamlega kom sá og sigraði og allir alveg ógeðslega sáttir! :) Megatöff lag, skiluru ;) Og vá hvað var gott aðeins að komast í burtu, skipta um umhverfi og tala íslensku og vera meðal góðra vina. Ég er alltaf að uppgötva betur og betur hvað vinir eru óendanlega dýrmætir:) Svo var margt fleira brallað, kíktum m.a. út á laugardagskvöldið á írskan bar og karókí bar þar sem við hittum fullt af Íslendingum. Og svo fór sunnudagurinn í svefn til kl. 14 takk fyrir!! og svo í túristalabb um Köben þar sem ég hef í rauninni aldrei komið þangað áður, nema bara rétt þegar ég flaug þangað fyrir 3 vikum. Þannig að fórum á alla helstu túristastaðina og ég tók myndir og svo settumst við á kaffihús og höfðum það voða huggulegt. Og svo í gærkvöldi fór ég til Borgnýjar og við fórum út að borða á íslenskan veitingastað sem hann Friðrik Weiss... eitthvað á. (man ekki alveg hvað hann heitir) Og þetta var gjörsamlega yndislegt kvöld. Hitti m.a. aðra íslenska stelpu sem er með Borgnýju í læknisfræðinni, sá skólann hennar Borgnýjar og að sjálfsögðu íbúðina hennar, sem er bytheway ógeðslega flott og mig langar að flytja NÚNA!!!! Ég er sem sagt strax farin að leita að öðrum stað að búa á, er ekkert alltof sátt hér og því fyrr því betra..... held það verði samt ekki fyrr en næsta haust sem ég flyt, en við sjáum til.... já og svo leið kvöldið bara með löngum samtölum fram á rauða nótt enda er ég nokkuð búin á því núna. Held ég fari að drífa mig í rúmið svo ég geti tekist á við nýjan dag á morgun :) Vona að þið hafið það sem allra best hvar sem þið eruð. Luv, Gyða

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 00:29:19 / gyda

Ég er bestasta besta bloggstelpan!

Vá hvað ég er eitthvað dugleg að blogga þessa dagana, það er alveg ótrúlegt:) Klukkan er núna 12 mín. yfir eitt að nóttu og ég var að koma úr bænum þar sem var hittingur með nokkrum íslenskum læknanemum. Held það hafi verið um 10-15 kannskí í allt, var reyndar búin að hitta nokkra áður, en líst ekkert smá vel á alla og frábært að tala íslensku og hitta einhvern sem skilur mig, þ.e.a.s. bæði tungumálið mitt og líka það sem ég er að ganga í gegn um núna, því þau hafa öll "been there done that" og vorum með fullt af góðum ráðum handa mér og Berglindi (hinum læknanemanum sem var að byrja með mér) og ekkert smá skilningsrík á allt:) En svo ætlaði ég að fara að hjóla heim núna áðan í þessari líka rosalegu rigningu (já veðrið hérna er nú ekkert búið að vera neitt til að hrópa húrra fyrir) og hvað gerist ekki þegar ég er nýlögð af stað, jú keðjan fer af teinunum! Ég hef nú oft kippt því í lag á fjallahjólinu mínu heima, en neinei, þetta var ekki alveg sama sagan því núna er ég sko ekki á neinu fjallahjóli!! Og ég reyndi og reyndi að fá keðjuna aftur á sinn stað og Berglind líka og við allar orðnar grútskítugar á puttunum í þessari líka miklu rigningu og svartamyrkri en allt kom fyrir ekki, hún bara vildi ekki á aftur! Þannig að ég neyddist til að borga 1500 kall í leigubíl heim og var rétt að skríða inn úr dyrunum og eftir að vera búin að skrúbba tjöruna af puttunum á mér í góðar 5 mínútur þá er ég núna sest niður aðeins til að róa taugarnar og er að gæða mér á eplaköku sem hún Ann, nýi meðleigjandinn okkar bakaði handa okkur í morgun! Úff maður, hverju lendir maður ekki í hérna!! Vá hvað ég verð fegin að henda mér upp í rúm núna á eftir og fara að sofa. Og svo neyðist ég þá víst til að taka strætó á morgun og fara kannski að leita mér að aðeins betra hjóli. Ég held ég segi bara góða nótt.

Gyða heilsar ykkur með alltof skítugar hendur, fullan maga af eplaköku og smá pirringi yfir hjólaleysi og ýmsu öðru leysi... t.d. tungumálaleysi og já... hmmm, held ég segi þetta nóg í bili.


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 20:21:41 / gyda

Er aðeins komin á undan sjálfri mér:)

Mætti í skólann í dag kl. 12 skv. stundatöflunni minni og mætti sem sagt í vefjafræði og allt í góðu með það. Nema hvað það eru eldri nemendur að kenna okkur og allt í einu voru allt aðrir nemendur að kenna en í síðasta tíma, en ég spáði ekki mikið í því. Og svo byrjaði kennslan og þá var ég allt í einu stödd í miðjum fósturfræðitíma hjá ja... hmmm... veit ekki alveg, kannski 3. eða 4. önn! Allavega ekki mínum bekk!!! Og svo fór ég að líta aðeins í kringum mig og jú ég þekkti strákinn við hliðina á mér því hann er mér með í bekk, en ALLIR hinir í stofunni, ja ég hafði bara aldrei séð þá áður!!!!! :):) Vá maður, þetta var aldeilis skemmtileg lífsreynsla, ég og Carl (strákurinn sem er með mér í bekk) litum svona á hvort annað og vissum ekki alveg hvað við ættum að gera, should we go or should we stay??? Líka sérstaklega þar sem við sátum nánast alveg fremst í stofunni!! Þannig að við hlustuðum á mjög áhugaverðan fósturfræðifyrirlestur í ca. 15 mín. og eftir að hafa skilið svo mikið sem u.þ.b. 1 orð þá ákváðum við að laumast út. Og það tókst reyndar vel þó að það hafi nú alveg verið horft á okkur... "einhverjir áttvilltir 1.ársnemar" hafa krakkarnir hugsað með sér, NEI ég held nú ekki!! ;) :) Vá maður hvað þetta var óendanlega fyndið!!!Og svo komumst við að því að það var búið að færa tímann okkar þar til á morgun! Þannig að við allavega misstum ekki af honum sem var mjög gott. En ég eignaðist góðar minningar í dag og fékk að gera mig að fífli fyrir framan bye-the-way mjög sæta eldri nemendur og einn þeirra var m.a.s. Íslendingur, veit reyndar ekki hvor þeirrra. En kemst líklega að því fjótlega! hehe, skemmtilegt líf :):):)

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 10:28:04 / gyda

Ny vika og rustur ad baki

Jamms og jæja, tá er rustúrinn búinn og enginn smá helgi vægast sagt!!!!! Tetta er eins og med vísindaferdirnar heima, what happens in "rustur" stays in "rustur"! Tannig ad ekki alltof mikil smáatridi fra mer, en tad var samt alveg rosalega gaman. Forum i ratleiki og alls konar keppnir og svo var laugardagskvøldid snilld tar sem var slegid upp brúdkaupi teirra George Michael og Elton Johns og fullt af gódum gestum sem mættu á svædid, m.a. Pamela Anderson, Britney Spears, páfinn, rambó, Michael Jackson, Ozzy Osbourn og margir fleiri gódir og svo ad sjálfsøgdu kóngurinn sjálfur hann Elvis Presley!!! :) Ég tók mig nú bara mjøg vel út var mér sagt, nádi múnderingunni allvega mjøg vel tó ég hafi nú ekki tekid lagid samt, sem var ágætt ;)

Og svo er bara kominn tridjudagur og tarf víst loksins ad fara ad byrja ad læra. Var ad koma úr anatomiu fyrirlestri og er búin í dag. Ætla ad hjóla heim í sturtu og fá mér ad borda og bretta svo upp ermar og fara ad lesa allt um frumuna, já og kannski kíki ég eitthvad á efnafrædina og anatomíuna. Tad er allavega nóg í bodi, tad vantar ekki!

hej hej, hilsen Gyda


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 15:30:28 / gyda

Stutt og laggott

Málið er sem sagt að ég er að fara í "rustur" um helgina, sem er svona ekta danskt ferðalag í byrjun skólans með öllu tilheyrandi. Og þemað á laugardaginn er sem sagt brúðkaup þar sem allir eiga að leika ákveðið hlutverk og ég á sem sagt að leika Elvis Presley takk fyrir og syngja m.a. eitt rómantískt lag fyrir brúðhjónin!! Þannig að það verður nú aldeilis gaman!!! :)

Annars hitti ég 4 íslenska læknanema héðan á kaffihúsi í gær og frábært að kynnast þeim aðeins, maður á nú ábyggilega eftir að sjá mikið meira af þeim. Og svo var mér gefið hjól af einni stelpunni, þannig að ég er alveg í skýjunum með það! Og svo er það helst af mér að frétta að ég er byrjuð að læra takk fyrir!! Tók nokkra klukkutíma í efnafræinni í gær og svo er ég rétt að taka mér kaffi/internetspásu frá vefjafræðinni núna en þarf víst að halda henni áfram. Gef ykkur frekari rapport eftir helgina af þessaum crazy "rustur" sem er í vændum. Ses, hilsen Gyða


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3